þýðingaþjónusta
Clarus á latínu merkir m.a. að eitthvað sé skýrt eða tært; af því eru meðal annars orðin „clear“ á ensku og „clair“ á frönsku dregin.
Clarus þýðingaþjónusta hefur að leiðarljósi að þýðingar séu á skiljanlegri og læsilegri íslensku – þannig að merkingin sé ávallt skýr.
Clarus þýðingaþjónusta er rekin af Hrafnkatli Óskarssyni, lögfræðingi og löggiltum skjalaþýðanda.
Hrafnkell er löggiltur skjalaþýðandi úr ensku á íslensku. Hann lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1996 og meistaragráðu (LL.M) í Evrópurétti frá King´s College London árið 2000. Hrafnkell býr að 30 ára starfsreynslu úr íslenskri og evrópskri stjórnsýslu og sem lögmaður með sérþekkingu á félagarétti, fjármálum fyrirtækja, samkeppnisrétti og EB/EES-rétti.
Clarus þýðingaþjónusta býður þýðingar úr ensku, frönsku, dönsku og norsku á íslensku, auk löggiltra skjalaþýðinga af ensku á íslensku. Helstu sérsvið eru textar á sviði lögfræði, hagfræði og fjármála. Viðskiptavinir eru m.a. dómstólar, ráðuneyti, lögmannsstofur og fyrirtæki.
Hrafnkell er á LinkedIn.
Löggiltur skjalaþýðandi er sá sem hefur fengið löggildingu til að annast þýðingu skjala sem hafa réttarlegt gildi samkvæmt ákvæðum laga um dómtúlka og skjalaþýðendur nr. 148/2000.
Skjölum á erlendum tungumálum sem leggja þarf fram í dómsmáli þarf oft að fylgja þýðing sem gerð er af löggiltum skjalaþýðanda, sem staðfestir þýðinguna með áritun sinni.
Einnig getur þurft að leggja fram löggiltar þýðingar skjala í tengslum við opinbera skráningu eða í tengslum við málsmeðferð hjá ýmsum stjórnvöldum.